Skíðaganga. Þeistareykir-Höskuldsvatn AFLÝST
DAGS
Kl.
9-17
BROTTFÖR Kl.
9
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services
Lýsing
Ferðinni hefur verið aflýst vegna þátttökuleysis
Brottför kl. 9 frá FFA, Strandgötu 23
Sameinast í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far með öðrum taka þátt í bílakostnaði.
Fararstjórn: Sigurgeir Sigurðsson
Gengið frá Þeistareykjum að Höskuldsvatni. Þægileg ganga. Hægt að ganga til Húsavíkur ef vill.
Vegalengd: 20 km. Hækkun nánast engin, lækkun nokkuð í það heila, gengið um ávöl hraun og mela. Allt á kafi í snjó þarna er sagt.
Æskilegt að vera á skíðum með stálköntum.
Verð: 2.700 / 4.400 kr.
Greitt við brottför
Búnaður
Dagsferðir á gönguskíðum
Nauðsynlegur búnaður í dagsferð á gönguskíðum:
Gönguskíði og skíðaskór. Best er að hafa skíði með stálköntum/utanbrautarskíði
Skíðastafi (athugið að ólin sé þannig að þið komist í þykkum vettlingum í hana)
Gott að hafa meðferðis skinn á skíðin
Skíðagleraugu, sólarvörn og varasalvi
Vind- og vatnsheldan jakka
Vind- og vatnsheldar buxur
Ullarnærföt
Hanska/vindhelda vettlinga
Drykkjarflösku og smá orku til að narta í t.d. orkustykki (alltaf eitthvað heitt að drekka)
Sólarvörn og varasalvi
Gott að hafa höfuðljós í lengri ferðir
Sjúkragögn, hælsærisplástur, verkjalyf og annað smálegt
Sjúkragögn (hælsærisplástur og annað smálegt)
Gott að hafa létta úlpu og þurra vettlinga (gott líka að hafa „pokavettlinga“ til að hafa yfir aðra). Margir hafa líka með sér þurra húfu

